16.4.2009 | 13:44
Skiljanlega
Ég er á þeirri skoðun að það sé lítið við því að gera ef einstaka aðilar upplifa ákveðið harðræði af hálfu lögreglu þegar að svona aðgerðir eiga sér stað.
Ef ég hefði verið uppi á lofti í annara manna húsum, búinn að hunsa viðvaranir vígbúinna lögreglumanna, með sundgleraugu og klút eða jafnvel gasgrímu tilbúinn að ,,berjast" gegn lögreglunni á leið hennar til þess að handtaka mig, þá hljóta afleiðingarnar að vera öllum ljósar.
Mér þykja rökin um að ákveðnir menn hafi lagt undir sig landið og nú megum við leggja undir okkur eitthvað annað gjörsamlega fáránleg.
Það er nú bara þannig að ef að við ætlum að spila eftir þessari taktík þá geta allir bara gert nákvæmlega það sem þeim sýnist núna vegna þess hve illa aðrir hafa farið með þá.
Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Nei veistu. Þá værum við öll löngu farin til fjandans.
Segir lögreglumann hafa beitt harðræði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.12.2008 | 15:35
Vélmennið mitt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2008 | 08:52
Gjörsamlega fáránlegt
4 leikja bann er ALLTOF mikið!
Karlgreyið var bara að ýta aðeins frá sér eftir að hafa verið kallaður negri. Hvar er samúðin
Ferguson æfur vegna refsingar Evra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 21:09
Algjört lykilatriði
Tottenham verður einfaldlega að vinna þennan leik, ég held að þeir séu nú ekki að fara að falla í vor en það er sama, þeir eru 1 sæti frá fallsæti og í slag við lið sem er 3 stigum ofar en þeir í töflunni. Nú þýðir ekkert rögl.
Áfram United
Tottenham sigraði West Ham á Upton Park | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 15:41
Munur á mótmælum og asnaskap
Þetta náttúrulega kann engri lukku að stýra. Það er vonandi að sem flestir segi sínar skoðanir, skrif, skeggræði og mótmæli allt hvað þeir geta.
Mæti á þingpalla og ræði við alþingismenn að vinnudegi þeirra loknum, skrifi þeim bréf, hringi í þá, sendi þeim táknræn skilaboð og gjafir, stofni blöð og allt hvað fólki dettur í hug.
En svona fíflaskapur í siðmenntuðu samfélagi er ekki töff.
Ólæti á þingpöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.12.2008 | 13:38
Priceless fyrirsögn
Já ekki er öll vitleysan eins
Fréttaþyrstir lesendur mbl.is þurfa ekki að örvænta lengur. Mbl.is hefur greint okkur, íslendingum öllum, frá því að hún Katie Holmes hafi verið með slæðu um magann. GUÐ. SLÆÐU !!!!
Nú í ljósi þess, og auðvitað þeirrar STÓR GRUNSAMLEGU staðreyndar að hún var í VÍÐUM kjól, þá er hún náttúrulega klárlega ólétt. That's a given! Shay Given even.
Jahá....
Katie með slæðu um magann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 08:59
Body of Lies
Þetta minnir mig nú heldur betur á myndina Body of Lies sem ég sá í bíó í gærkvöldi. Ákvað að skella mér svona aðalega þar sem að Ridley Scott leikstýrir, og hann sveik mann ekki.
Þetta er hörkugóð mynd sem fjallar um aðgerðir CIA manna í miðausturlöndum. Það er enginn annar en smástrákurinn og turtildúfan Leonardo DiCaprio sem leikur grjótharðan CIA útsendara og nær hann að komast ótrúlega vel frá því!
Mæli með henni fyrir alla þá sem hafa gaman af pólitískum spennumyndum
Ráðist gegn Lashkar-e-Taiba | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2008 | 14:53
Hitler í heilsuátaki
Hér er myndbandið sem ég gerði fyrir jólahlaðborðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2008 | 12:50
Hann er bara svo lítill !!
Nema að stóllinn sé bara svona stór.
Fordæma fund Sarkozys og Dalai Lama | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2008 | 08:57
Allir gegn lögreglunni
Hvernig er það?
Hvaðan í ósköpunum kemur þessi síendurtekna þörf fólks, og þá sérstaklega ungs fólks til þess að ráðast gegn lögreglunni. Þessi frétt vakti ekki upp neitt annað hjá mér en pirring gegn þessu blessaða hálffullorðna fólki sem getur ekki haft hemil á sér.
Eins og blessað fólkið sem varð sér til skammar og lét sýna sig að brjótast inn í andyri lögreglustöðvarinnar hér á landi um daginn. Því miður hefur lögreglan í alltof mörgum tilfellum uppá síðkastið verið staðið að hlutum sem eru ekki til að auka á trúverðugleika hennar en því má ekki gleyma að við erum fólk að verja fólk, feður og mæður að vinna dagvinnuna sína (lögreglumenn).
Ég ætla að vona að við séum öll sammála um það að við viljum hafa lögreglu í landinu okkar?
Óeirðir í Aþenu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)